Thursday, December 20, 2007

Já bjúgnakrækir kom í morgun . ég lét sko ekki bjúgu hjá honum eftir að skyrgámur setti allt á annan endan í glugganum mínum. En hann gaf mér flott. Ég fékk nærföt smá jólasveinanammi og hlýja hanska... Þetta var svolítið mikið fannst mér en ég var líka stillt og góð og fór snemma að sofa..

Það var jólaball í morgun ég kann einhvernvegin aldrei við mig í fjölda svo ég hélt mér bara hjá mömmu og vinkonum mínum. Það var fínt og leikritið gekk líka vel þar sem ég lék jólasvein og fékk að standa aftast. Svona er þetta bara stundum!


Tíundi var Gluggagægir,grályndur mann,sem laumaðist á skjáinn og leit inn um hann.
Ef eitthvað var þar inni álitlegt að sjá,hann oftast nær seinna í það reyndi að ná.

1 comment:

Sigga said...

Þeir eru alltaf bestir jólasveinarnir sem standa aftast. Manni langar alltaf mest að kynnast þeim.
Knúsi knús frænka